Þá erum við hjónakornin mætt í stórborgina. Við lentum um hálf 10 í gærkvöldi og flýttum okkur í íbúðina okkar, klyfjuð dóti. Starfsfólkið á flugvellinum var afar hjálplegt, við sluppum við að borga yfirvigt og það var ekkert tekið af okkur í öryggisleitinni nema einn skiptilykil (hvað er annars að því að vera með skiptilykil í handfarangri??).
Faðir leigusalans beið svo eftir okkur í íbúðinni, ótrúlega indæll maður sem klappaði okkur sagði sögur, var búinn að kaupa lífræn epli og banana og jógúrt svo við hefðum eitthvað í morgunmat. Íbúðin er stór, björt og falleg. Eldhúsið er to die for, fjögur stór svefnherbergi og geggjað útsýni yfir Mäleren. Við leigjum með húsgögnum og það er þvílíkur munur að þurfa ekki að fara að kaupa allt. Hér eru krydd í skápum, handklæði, sængur, ryksuga, diskar og hnífapör, internettenging, flatskjár og allskonar dótarí. Pottar í skápum og eldhúsdót í skúffum.
Fórum á stúfana í dag og keyptum okkur lestarkort, brunuðum svo í bæinn að redda málum. Við fórum sumsé í Skatteverket í miðbænum til að sækja um kennitölu og skrá okkur inn í landið. Þar var þvílíka örtröðin, aðstoðarfólk út um allt með gulan borða og svo fékk maður númer...við vorum sumsé nr. 476 í röðinni og þegar við komum var verið að afgreiða þann sem var nr. 411. Röðin gekk nú samt merkilega fljótt fyrir sig. Svo þurfum við að fara með krakkana í sama ferli þegar þau koma. Það er ekki hægt að gera neitt fyrr en maður hefur fengið kennitölu, en hún kemur til manns í pósti eftir tvær til fjórar vikur.
Röltum um Gamla stan, keyptum öl á 55 sænskar (!!!) og skoðuðum okkur svo um í stærsta þjónustu- og verslunarkjarnanum hérna í grenndinni (Vållingby), en þar má meðal annars finna H&M auk fleiri verslana.
Á morgun neyðumst við til að fara og versla í matinn, ætlum svo að kíkja á skólann okkar og reyna að leysa úr símamálum. Við erum með heimasíma en hann virðist ekki virka sem skildi og íslensku gsm kortin okkar eru dauð. Svo er reyndar dyrabjallan biluð (!). Annars allt í hinu besta, frábært veður í dag og góð spá fyrir næstu daga.
Kveðjur frá Stokkhólmi!
02 ágúst 2011
17 júlí 2011
Tvær vikur í brottför...
og spennan magnast að sjálfsögðu. Pökkun er í fullum gangi - til dæmis voru fatastaflar flokkaðir í fjórar hrúgur í dag; henda, Rauði krossinn, Svíþjóð, geymsla. Komst að því að Addi á um það bil 15 stuttbuxur :)
Annars hefur þessi helgi verið tekin með trompi í góðra vina hópi. Á föstudaginn var svolítil óvissuferð í vinnunni hans Adda og svo skemmtilega (og óvænt fyrir hann) vildi til að óvissan endaði með matarveislu í Vanabyggðinni. Ég hamaðist sveitt við að pakka, skúra og skrúbba og stilla upp í stofunni svo koma mætti fyrir 20 manns í mat. Þá kom sér vel að vera með tvö borðstofuborð - annað 12 manna og hitt 8 manna. Hér var drukkið mikið og borðað, sungið, trallað og hlegið fram á nótt. Í gær vorum við á Ólafsfirði með góðum vinum og litum svo við hjá kollega um kvöldið - sú heimsókn endaði í öl á Götubarnum eftir miklar spegúlasjónir um Andrés önd, Tinna og týnda bíla á hálendinu.
Sumsé, Götubarinn tvö kvöld í röð. Það tekur á að sinna félagslífinu svona áður en við flytjum úr landi...
Næst á dagskrá er Stieg Larson maraþon, frágangur í MA og meiri pökkun og vinaheimsóknir, gleði og tregafullar kveðjustundir.
yfir og út...

29 júní 2011
Brottför eftir 33 daga
33 dagar í brottför okkar Adda! Einn kassi á dag kemur skapinu í lag.
love,
V
25 júní 2011
Foreldrastund
Ég er nánast aldrei ein heima. En það gerðist í dag - mamma tók Jóhannes með sér á Krókinn og Addi fór í Lauga að sækja Rannveigu Katrínu. Ég var alveg eirðarlaus og vissi ekkert hvað ég ætti af mér að gera. Endaði svo á því að blasta FM Belfast og skúra, pakka niður kristal, þurrka af og endurraða í stofunni.
Það stóð á endum - ég var að klára þegar Rannveig og Addi komu heim. Við buðum drottningunni svo á Greifann. Það hafði staðið til í nokkurn tíma - eða frá því hún kláraði skólann. Þessi stelpa er ótrúleg - lauk píanónámi vetrarins með 8,4 í einkunn, fékk framúrskarandi góða umsögn og frábærar einkunnir fyrir allt sem hún gerði í skólanum og bætti sig mjög mikið í sundinu í vetur. Stóðst allar áskoranir með prýði, en þessi vetur hefur verið mjög krefjandi fyrir okkur öll, óvenju mikið að gera hjá foreldrunum (Addi var einmitt að ljúka diplomanámi í opinberri stjórnsýslu frá HÍ) og barnið kannski ekki fengið eins mikla athygli og hún á skilið. Við áttum frábæra kvöldstund saman og greinilegt að daman kann að meta að fá að vera ein með foreldrunum :o)
Enduðum kvöldið í Eymundsson þar sem við fjárfestum í kennsludisk og bók í sænskri tungu. Nú verður farið í stífar æfingar, jibbíkóla.

13 júní 2011
Sommer of ´96
Merkisdagur í dag - ætli ég eigi ekki 15 ára fermingarafmæli í dag. Eða svona hérumbil. Fermdist á hvítasunnudag 1996 í upphlutnum hennar mömmu. Fékk bjútíbox og hárblásara í fermingargjöf, hnakk og æðardúnsæng. Æðardúnsængin er tvímælalaust besta gjöf sem ég hef fengið um ævina. Svo fékk ég einhverjar krónur og fyrir þær keypti ég mér flug til Noregs. Fór þangað viku eftir ferminguna og átti frábært sumar á Vestnesi.
Þetta var þvílíkt ævintýri fyrir 14 ára skrípi sem hafði aldrei áður farið til útlanda og varla til Reykjavíkur einu sinni. Myndin er tekin úr húsinu sem fjölskyldan bjó í. Sjálf átti ég mitt herbergi í húsinu á myndinni. Bjó sumsé bara ein þarna í húsinu, í stóru herbergi með baðherbergi. Fjölskyldan rak kiosk í þessu húsi og þetta herbergi var hugsað fyrir starfsmann sjoppunnar. Ég kynntist fullt af krökkum, grillaði pylsur í deigi á stöndinni, synti í sjónum, fór í partý, óteljandi reiðtúra ein í skóginum, fór í ferðalög, bakaði svele og borðaði óhugnanlega mikið af brauði með leverpostej. Lærði norsku, fór á Molde jazzfestival, steiktist í sólinni, fór á diskótek, hugsaði um tvö börn (stundum fjögur), tvær geitur og tvær kanínur. Fór í hjólatúr á Harley Davidson mótarhjóli, varð skotin og spilaði á gítar. Yndislegt sumar, besta sumar í geimi. Núna eru þessi börn orðin fullorðin og það þýðir að ég er orðin gömul :)

10 júní 2011
Það var kvartað...
yfir þessu kommentakerfi hér. Ég hafði ekki áttað mig á þessu stillingadæmi - núna getur sumsé hver sem er kommentað á þetta blogg. Ekki það að margir séu að lesa en kannski ágætt að þessir örfáu geti skilið eftir spor á síðunni.
09 júní 2011
Loviselundsskolen
Svíþjóðarundirbúningur er svolítið fyrirferðarmikill þessa dagana. Sem betur fer sýnist mér sænska regluverkið ekki eins mikið og var búið að vara mann við. Að minnsta kosti ekki hvað varðar blessuð börnin. Búið er að sækja um fyrir Jóhannes á fjórum leikskólum í hverfinu okkar og Rannveig er búin að fá pláss í Loviselundsskolen. Það er grunnskóli í um 900 metra fjarlægð frá húsinu okkar. Það er reyndar annar skóli ennþá nær en hann býður ekki upp á neina aðstoð fyrir erlenda nemendur. Hjá Lovísu byrjar Rannveig í sérstakri sænskukennslu og svo flyst hún í venjulegan bekk. Eins og ég skil það að minnsta kosti.
Það er að minnsta kosti mikill léttir að vita að hún fær pottþétt pláss í þessum skóla. Við ætlum að skoða hinn aðeins betur - mér var ráðlagt að reyna að koma henni að í sænskum bekk frá upphafi, enda má búast við því að hún verði farin að tala reiprennandi sænsku eftir örfáa mánuði.
Þau eru bæði mjög spennt og farin að velta fyrir sér hvað þau geti tekið með sér. Rannveig vill taka Astrid Lindgren bækurnar sínar, geislaspilarann og reiðhjólið. Jóhannes veit eiginlega ekkert í sinn haus og segir alltaf bara að hann geti eiginlega ekki tekið neitt með því það verði svo lítið pláss í flugvélinni.
Annars sit ég á Kaffi költ og reyni að vinna. Datt bara í hug að blogga pínulítið því það er svo kúltúrverað að sitja og blogga með latte við hlið sér. Hér eru (auk starfsfólks) tveir útlendingar sem eru væntanlega farþegar skemmtiferðaskipsins sem liggur hér við höfn. Par á mínum aldri, hann situr og skrifar póstkort og drekkur kaffi en hún er á netinu. Þau báðu um íslenska tónlist og hér ómar lónlíblúbójs í plötuspilaranum. Þau dilla sér bæði með, en gaman...
Annars er hér ein mynd af okkur hjónum sem tekin var fyrstu helgina í maí í brylluppi Dóra og Gunnu Siggu. Helvíti hvít og ræfilsleg. Núna eru einmitt 23 gráður í Stokkhólmi en 5° og rigning hér á Akureyri.
yfir og út

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)