Hér hefur verið frábært veður undanfarna daga, um og yfir 20 stiga hiti og glampandi sól í dag og í gær. Veðurspekingarnir segja að þetta séu síðustu sumardagarnir og nú komi haustið. Krakkarnir sem eru með mér í náminu og hafa búið í Svíþjóð í einhver ár hafa talað mikið um sænska veturinn og hversu H R Æ Ð I L E G U R hann sé. Við erum orðin býsna spennt og getum varla beðið eftir þessum hrikalega vetri. Hversu hræðilegur getur hann verið? Lýsingarnar eru allavega ömurlegar. Lestarkerfið leggst niður á snjódögum, svo mikil hálka að það er ekki stætt á gangstéttum og svo kalt að það smýgur inn í gegnum merg og bein. Og myrkrið. Skulum ekki gleyma því! Skólasystir hans Adda þurfti svo hreinlega að hætta í skólanum í fyrra af að það var svo kalt. Hryllingssögurnar náðu svo hæstu hæðum þegar ég ræddi veturinn við Pakistanann sem er með mér í skólanum. Hræðilegt, segi það og skrifa. Og við fjölskyldan bíðum spennt eftir að geta notað allar yfirhafnirnar sem við höfum fyllt skápana með og gönguskóna sem við fengum senda frá Íslandi...
Á fimmtudaginn skelltum við okkur í skógarferð í góða veðrinu eftir skóla og myndavélin var með í för. Við þurfum einungis að rölta nokkur hundruð metra og þá erum við komin út í þennan dýrindis skóg.
Jóhannes fann risastórt tré...sólin og Mäleren á bakvið.
Jóhannes og prikin. Jamm, hann gerir lítið annað en að safna prikum, í hverum einasta göngutúr (bæði með foreldrum og leikskólanum) endalaust prik, lítil, stór...
Fullt af bláberjum í skóginum
Og klettar sem gaman er að príla á
...og svo er líka gaman að hoppa af háum steinum...með prikin sín að sjálfsögðu!
Allt í einu fundum við rólu sem hékk í tré...
Og svo birtust þessi hús líka alveg upp úr þurru
Annars allt gott að frétta, nóg að gera í skólunum hjá öllum. Jóhannes talar sænsku og íslensku í bland, uppáhalds orðið þessa dagana er TITTA. Rannveig er svakalega dugleg í skólanum og gengur sérlega vel í ensku og stærðfræði, sænskan öll að koma. Svo eru sundæfingar fjórum sinnum í viku og mjög mikið heimanám, nóg að gera hjá blessuninni! Prófessorinn minn mætti í spariskóm um daginn og Addi fór á hádegisfyrirlestur með Fredrik Reinfeldt í síðustu viku. Við erum komin með áskrift að Dagens Nyheter og svo ryksuguðum við í dag.
Nóg í bili,
VSB