Ég kláraði síðasta kúrsinn í dag og er að sjálfsögðu afar ánægð með það. Næst á dagskránni er þá að hella sér út í vinnu við lokaritgerðina. Ég hlakka til að fást við það verkefni, þó enn sé frekar óljóst hvað ég ætla að skrifa um og hvaða aðferðafræði ég ætla að nota, en ég á tíma hjá leiðbeinandanum mínum á þriðjdaginn og hann hjálpar mér vonandi að koma svolitlu formi á hugmyndir mínar.
Tíminn hefur verið svo ótrúlega fljótur að líða og það er skrítið að hugsa til þess að við eigum aðeins eftir örfáa mánuði hér í Stokkhólmi! Við eigum enn eftir að gera svo margt af því sem við ætluðum að gera meðan við værum hérna úti, ég vona innilega að við getum grynnkað á to-do listanum okkar. Til dæmis langar okkur mikið mikið að skreppa yfir til Noregs, ferðast aðeins um norðurhluta Svíþjóðar, sigla til Gotlands og fara í ævintýraland Astridar Lindgren í Smálöndunum...og svo framvegis...
Ekkert útilokað ennþá :o)
14 nóvember 2012
05 nóvember 2012
Sunnudagsbananabrauð
Rannveig bakaði þetta fína bananabrauð í gær. Uppskrift frá ömmu Jórunni og börn og fullorðnir nutu þess að smakka :)
Litli skautadrengurinn
Jóhannes Árni fer á skautaæfingar á sunnudögum. Hann er ótrúlega duglegur litli drengurinn, puðar og puðar með bros á vör meðan hin börnin (langflest) taka fram úr honum, sum á ógnarhraða. En hann paufast og er ákveðinn í að læra almennilega að skauta. Enda eru skjótar framfarir. Markmið hans eru eiginlega tvíþætt; annarsvegar að geta skautað jafn vel og stóra systir og hinsvegar að geta kennt móðurinni að standa á skautum ;o)
Á leiðinni út á ísinn...
Að lokinni æfingu, rjóður og sveittur með bananann sinn í búningsherberginu.
03 nóvember 2012
30 október 2012
Halal kjöt og tyrkneskar fíkjur.
Það eru greinilega verkefnaskil fljótlega hjá mér. Þá þarf ég nefnilega alltaf að finna mér eitthvað annað að gera...en að sitja við skrifborðið mitt og skrifa. Til dæmis í dag, þá varð ég að fara að versla (og blogga um það). Ég þurfti hinsvegar ekki að eyða í það tveimur klukkustundum. Ég prófaði nefnilega nýja búð í dag! Þvílíkt himnaríki.
Hún er í sömu götu og stórmarkaðurinn sem við förum vanalega í en einhverra hluta vegna hef ég aldrei litið inn í hana. Þetta er sumsé mið-austurlensk verslunarkeðja (eða vörunar benda allavega til þess) og ég þekkti ekki nema svona um helming varanna þarna inni. En ég kom heim með appelsínusafa frá Egyptalandi, fíkjumauk frá Lebanon, fíkjur frá Tyrklandi (Midyat, sem var eitt sinn hluti af Sýrlandi), kókosolíu frá Sry-lanka og glænýtt halal slátrað nautakjöt (kjötborðs hluti búðarinnar ilmaði af blóði sko í alvörunni). Ég fékk líka 3,5 kg af kjúklingaleggjum (halal að sjálfsögðu) á litlar 50 krónur. Ég eyddi sumsé rúmum klukkutíma inni í þessari búð, að lesa á krukkur og poka, velja mér hnetur og fræ úr risastórum hnetubar, skoða óteljandi tegundir af hrísgrjónum (korn-"herbergið" var miklu stærra en ávaxta- og grænmetis"herbergið"), ólívum og allskonar góðgæti. Í þessari búð sá ég í fyrsta sinn úrval af lambakjöti. Ég hefði getað keypt frampart á fínu verði, eistu (já!), lifur og nýru, lambagarnir og skanka. Allt saman nýslátrað og að sjálfsögðu eftir halal hefðinni.
Svo varð ég að fara í gamla góða stórmarkaðinn eftir mjólkurvörunum og te-inu mínu. Það var sumsé ekki hægt að kaupa sænska mjólk í halal búðinni og ég ákvað að halda mig við Arla. Stórmarkaðurinn var ferlega óspennandi miðað við Grossen. En það tók að minnsta kosti ekki jafn langan tíma að renna þar í gegn!
ps. við fengjum glænýjar fíkjur í Grikklandi, beint af trénu. Það var held ég í fyrsta sinn sem ég smakkaði ferskar fíkjur. Þær voru undursamlegar og af allt öðru kaliberi en þær fíkjur sem ég hef prófað að kaupa hér í Svíþjóð. Ég hef mikla trú á þessu mauki frá Lebanon!

27 október 2012
Laugardagur með hefðbundnu sniði
Laugardagurinn hjá Adda og Rannveigu byrjaði klukkan 06:05, enda voru þau á leiðinni á sundmót. Við Jóhannes vöknuðum klukkutíma síðar en ferðinni var einnig heitið í sund. Jóhannes er um það bil hálfnaður með sundnámskeiðið og farinn að kafa og spyrna sér og svona allskonar. Hann stakk mig svo reyndar af og stökk beint niður í karlaklefann (enda vanari að fara með pabba sínum en mér í þessa laugardagstíma) og ég þurfti að sækja hann þangað, þar sem hann stóð berrasaður í heitri sturtunni og hafði það notalegt. Þetta var jafnvel svolítið vandræðalegt. Rannveig synti 100 m bringusund og bætti tímann sinn um tæpar þrjár sekúndur síðan í vor.
Stúlkan baðaði sig svo aðeins í Mäleren í dag, en við fórum í langan göngu/hjólatúr sem endaði með því að hún glannaðist eitthvað aðeins of mikið á ströndinni og pompaði út í! Þrjár gráður úti og vatnið ískalt.
Daginn endum við svo á þvi að horfa á Sven Ingvars syngja allskonar klassík á opnunarhátið Friends Arena í Stokkhólmi (nýji þjóðarleikvangurinn þeirra Svía). Við Addi ætlum einmitt að fara á þennan leikvang í vor og horfa og hlusta á Kiss...

22 október 2012
Haustkveðjur frá Jóhannesi
Á fullri ferð á leiðinni á leikskólann í morgun.
Leikskólinn hans Johannesar. Ekki sá glæsilegasti í borginni skulum við segja...
Laufin falla
:-*
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)