Við mæðgur fórum niður í bæ snemma í morgun, en sú yngri var á leiðinni í sund-æfingabúðir. Sundstarfið hérna er barasta frábært og mjög metnaðarfullt, án þess þó að ofbjóða börnunum með æfingum alla daga. Rannveig er í um 20 manna hópi þar sem eru bæði stelpur og strákar. Krakkar sem æfa sund hérna byrja í tækni-hópum og þau fá ekki að keppa strax. Svo þegar þau eru búin að ná nógu góðri tækni á öllum sviðum sem um ræðir fá þau að fara upp í keppnishópa. Mér sýnist að það sé algengast að þau nái upp í keppnishópa um 11-12 ára aldurinn, en í Rannveigar hópi eru þær þrjár sem eru fæddar 2001 og hin eru fædd '00 og '99. Þau eru með þrjá þjálfara, en yfirleitt eru tveir þjálfarar á æfingu, stundum allir þrír. Æfingarnar eru gríðarlega vel skipulagðar og alltaf eitthvað ákveðið í gangi í einu sem unnið er að. Svo eru krakkarnir með sunddagbækur sem þau eiga að halda utan um æfingaferli sitt og gengi á mótum, þjálfararnir taka svo bækurnar og gefa krökkunum endurgjöf (feedback).
Reglulega eru innan-félags mót, þar sem krakkarnir keppast við að ná ákveðnum lágmörkum sem þau verða að ná til að komast upp í næsta flokk. Þegar þau hafa náð lágmörkum í ákveðið mörgum greinum fá þau bikar. Þetta gera krakkarnir í tækniflokkunum líka. Svo eru sundmót í hverjum mánuði, hér og þar um borgina og alltaf jafn skemmtilegt.
Það er mikið lagt upp úr félagslegu hliðinni líka, en Rannveig er búin að fara í keilu með sundfélögunum sínum og svo eru alltaf litlir fundir eftir hverja æfingu. Fyrir áramót var sérstakur stelpufundur þar sem kvenkyns þjálfararnir ræddu ýmis mál við stelpurnar, bæði hvað varðar samstöðu og góðan anda í hópnum og einnig kynþroskann.
Nú er hópurinn sumsé í Nyköping, sem er um 30.000 manna bær í um klukkustundar fjarlægð. Þau fóru þangað í morgun með tveimur þjálfurum og fararstjóra úr hópi foreldra og fyrirhugaðar voru fjórar æfingar, sameiginlegur matur og skemmtanir, fjórir gista saman í herbergi fengu þeir elstu fyrst að velja sér herbergi og svo koll af kolli. Rannveig var ofsalega spennt fyrir þessari ferð og það var frábær andi í hópnum á Centralstation í morgun þegar ég kvaddi hana.
Þannig að um helgina erum við Addi ein með litla drengnum okkar meðan dóttirin syndir og leikur sér þess á milli.
28 janúar 2012
25 janúar 2012
Að nesta sig upp...
Þegar það tekur konu um klukkustund að komast í skólann og aðra klukkustund að fara til baka er mjög mikilvægt að nesta sig vel upp áður en haldið er af stað. Það gefur augaleið að enginn fer þessa leið fyrir minna en heilan dag og vonandi vel það. Maturinn á háskólasvæðinu er hvorki sá girnilegasti né sá ódýrasti og kaffið kostar hálft nýra. Sko svona gott kaffi sem mér finnst svo gott að drekka. Ef ég er alveg að sofna er gott ráð að stökkva niður í 7/11 sjoppuna sem er í háskólabyggingunni og kaupa sér vélarkaffi á 10kall. Ég hef sumsé ekki ennþá lagt í að fara með kaffi á brúsa með mér í skólann. Hreinlega nenni því ekki. Það er samt einn bekkjarfélagi minn sem hjólar alltaf um hálftíma leið í skólann OG kemur með kaffi á brúsa OG mjólk út í kaffið. Það kalla ég dugnað.
Allavega. Málið er sumsé að elda alltaf aukalega og eiga nesti til að taka með sér.
Áðan mallaði ég pottrétt með uppáhalds bragðinu mínu, bara til að eiga í nesti...náði í um fimm skammta og þeir fara í frystinn og svo getur maður gripið þetta með sér. Cummin, hvítlaukur, engifer, kókosmjólk, niðursoðnir kirsuberjatómatar, sætar kartöflur, gulrætur, kjúklingbaunir, kóríander...nammi :o)
Svo þurfa alltaf að vera til epli í ísskápnum, hnetusmjör í dalli, möndlur, bananar og vatnsflaska. Good to go!
Allavega. Málið er sumsé að elda alltaf aukalega og eiga nesti til að taka með sér.
Áðan mallaði ég pottrétt með uppáhalds bragðinu mínu, bara til að eiga í nesti...náði í um fimm skammta og þeir fara í frystinn og svo getur maður gripið þetta með sér. Cummin, hvítlaukur, engifer, kókosmjólk, niðursoðnir kirsuberjatómatar, sætar kartöflur, gulrætur, kjúklingbaunir, kóríander...nammi :o)
Svo þurfa alltaf að vera til epli í ísskápnum, hnetusmjör í dalli, möndlur, bananar og vatnsflaska. Good to go!
24 janúar 2012
Guðmundur...
"Mamma, mig langar að tala við afa sem er dáinn í tölvunni"
Ég sagði honum að það væri ekki hægt því hann væri dáinn.
"Er hann þarna uppi, hjá Guðmundi?"
Ég sagði honum að það væri ekki hægt því hann væri dáinn.
"Er hann þarna uppi, hjá Guðmundi?"
22 janúar 2012
Snjókoma
Kannski er sænski veturinn að koma, það hefur allavega snjóað svolítið síðustu daga og á að vera kalt eitthvað áfram. Á sunnudagsmorgni sem þessum er svo liðið komið út að moka klukkan sjö. Um leið og fyrsta kornið mætir er byrjað að moka gangstéttarnar og strá á þær möl (sem er í þar til gerðum boxum sem eru hérna útum allt). Jón Gnarr hvað sko!
Annars sagði Dagens Nyheter um daginn að sumarið kæmi snemma þetta árið og í febrúar myndi byrja að vora. Þannig að hryllingssögurnar um sænska kuldann og snjóinn eiga ekki við um þennan vetur. Jóhannesi finnst það alveg glatað en við hin erum bara nokkuð sátt :o)
18 janúar 2012
Húsmóðirin
og börnin heima í dag, öll á náttfötunum þó klukkan sé að verða hálf tvö. Ég læri í aðferðafræðinni, Rannveig litla lasin að læra í íslenskubókunum sínum og Jóhannes lúrir í mömmuholu, búinn að vera veikur síðan á sunnudaginn með ælu og slappleika. Á meðan er húsfaðirinn í skólanum og svo er hann að fara í stöðupróf í sænsku seinnipartinn.
17 janúar 2012
Leitin að mojo-inu
Ég hef nú svosem ekki prjónað mikið í Stokkhólmi, eina peysu, nokkur vettlingapör og tvo kraga. Ég er búin að týna mojoinu mínu hvað viðkemur prjónunum. Mamma sendi mér þetta gula og græna garn, ég prjónaði peysu sem átti að vera á Jóhannes, var ekki með uppskrift og slumpaði bara á eitthvað, út frá nokkrum uppskriftum sem ég fann. Þetta var útkoman og ég nenni engan veginn að rekja hana upp. Eins og glöggir geta séð ætti búkurinn að passa á soninn en ermarnar gætu passað á eins árs krakka. Um leið og ég kemst í saumavél verður peysunni breytt í stuttermalopapeysu. Eins klúðraði ég þessu fína vettlingapari á dögunum (sjá neðar).
Þessi fartölvuhlíf virkar svosem ágætlega.
Og þessi kragi er afar elskulegur, mjúkur og góður úr tvöföldum plötulopa. Gerður eftir þessari uppskrift hér: http://www.knittedbliss.com/2010/11/pattern-stockholm-scarf.html. Það er bara of gaman að prjóna svona útprjónað dót. Hann lítur að sjálfsögðu betur út í dag en á þessari mynd, var ekki búinn að þvo hann og fela enda og svona.
Svo gerði ég þetta fína rósavettlingapar. Sem átti að vera á Jóhannes. Fylgdi uppskrift og allt en þeir eru alveg glataðir. Ætla að rekja þá upp og betrumbæta. Bannað að gefast upp, verð að finna mojo-ið aftur!
Annars fann ég þessa fínu kertastjaka í ísskápnum hjá mér, í þeim var hörfræolía sem rann út fyrir tveimur árum (leigusalinn erfði okkur jú að ýmsu...).
16 janúar 2012
Góðan daginn allan daginn
Ég bý mér oft til drykki á morgnana með töfrasprotanum mínum. Ég er nú frekar vanaföst þegar kemur að þessum drykkjum mínum og algengasta blandan er nokkurnvegin svona, fer eftir því hvað er til hverju sinni (spínat/rucola er algjör snilld út í þetta...):
1/2-1 banani
nokkur frosin jarðarber
slatti af frosnum bláberjum
ca. 1 msk lífrænt hnetusmjör
1 egg
svolítið af lífrænu kókosmjöli
slurkur af vatni + hrísgrjónamjólk
Þetta er rosalega gott. Í morgun fór ég hinsvegar ótroðnar slóðir, átti hálfa appelsínu síðan í gær sem ég vildi ekki láta fara til spillis. Hef alltaf verið hrædd við að nota appelsínur í booztin mín, veit ekki alveg af hverju...en ætla að hætta því af því að morgundrykkurinn var mjög mjög góður.
1 banani
nokkur fersk jarðarber
slatti af frosnum bláberjum
1/2 appelsína
ca. 1 msk hnetusmjörið góða
kanil
smá sletta af eplasafa
Ég átti ekki lífrænt egg, annars hefði ég sett eitt svoleiðis.
Rólegur mánudagur framundan með litla lasna kútnum mínum.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)