Ég ætla ekki að lýsa því hvað þetta kvöld var frábært. Ég þurfti að ferðast í tæpa tvo klukkutíma, borgina nánast á enda, til að komast til hennar en það var vel þess virði. Ásamt okkur tveimur voru þarna fimm íranskir vinir hennar. Þau voru skikkuð til að tala ensku allt kvöldið svo ég gæti verið þátttakandi í samræðunum. Ætli ég hafi ekki verið langelst í hópnum, þau voru samt öll að ljúka mastersnámi eða komin í doktorsnám - og öll í eðlisfræði eða stjörnufræði...nema við kennaranördarnir tveir.
Eldamennskan og undirbúningurinn tók alveg tvo daga. Borinn er fram heilsteiktur fiskur með fyllingu úr kóríander, granateplasósu, valhnetum, greipsafa, hvítlauk, myntu, berberis. Svo voru tvenns konar dúllerí hrísgrjón með fiskinum, ólívusalat og svo gott hvítvín. Í eftirrétt voru svo örugglega sex mismunandi tegundir af sætindum. Síróps, saffran, kókos og svo framvegis. Svolítið framandi sætindi fyrir mig sem kem frá súkkulaðilandi en rosalega gott. Með þessu var drukkið te. Alveg rosalega mikið te, sérstaklega blandað, beint úr suðri, ferskt og mjög gott. Og rosalega mikið, alveg 10 bollar sko!
Svo er mikilvægt að stilla upp sjö mismunandi hlutum sem eiga að tákna nýtt líf, gleði, ást, fegurð og heilsu, sólarupprás, þolinmæði og svo hvítlaukur til að reka hið illa í burtu. Þetta voru epli, möndlur, vatn, grænt gras (?) og eitthvað fleira (já auðvitað hvítlaukur!).
Nýja árið gekk svo í garð um kl. 8 morguninn eftir að sænskum tíma og þá vildu þau öll vera vakandi (og helst vaka alla nóttina). Það sem maður er að gera þegar skiptin verða, er eitthvað sem maður á eftir að gera mikið af (eða sem maður vill gera mikið af) á nýja árinu. Svo fæstir vilja vera sofandi skiljanlega :o)
Persnesku áramótin eru mikil hátíð sem nær yfir marga daga. Það eru nefnilega frídagar í tvær vikur eftir áramótin og síðasta frídaginn fara allir í lautarferð til að fagna vorinu! Við ætluðum í lautarferð ásamt nokkrum bekkjarsystrum okkar í lok mars en þá var bara svo helvíti leiðinlegt veður að við frestuðum henni. Vonandi fer sólin að láta sjá sig almennilega svo við getum fagnað persnesku - og sænsku - vori.