Það er að mörgu að huga þegar flytja skal til annarra landa. Við erum svona rétt að fá smjörþefinn af því. Fyrst þarf að finna sér íbúð áður en maður getur farið að sækja um leikskóla og skóla fyrir börnin litlu. Svo þarf maður að skrá sig inn í landið og fá kennitölu og það getur víst tekið býsna langan tíma. Húsaleigubætur þarf að sækja um og komast inn í kerfið til að fá barnabætur og allskonar. Sjálfsagt örlítið minna mál ef ekki væru börn með í för ;)
Við erum búin að festa okkur íbúð. Jess! Hún er rétt við Hässelby strand sem er...hvað skal segja...vestur af Solna og háskólanum okkar. Það tekur um 45 mínútur að fara með lest í skólann og ég er strax farin að hlakka til að rölta á lestarstöðina með kaffibollann minn, lesa svolítið í skólabókunum í lestinni, rabba við eiginmanninn (ef hann verður með í för) og jafnvel kíkja í dagens nyheter ef tími vinnst til. Rétt við húsið okkar er risastór skógur, baðströnd stutt frá og það besta við þetta allt saman er:
G E S T A H E R B E R G I Ð
Það verður ótrúlega kósí að koma í heimsókn til okkar og förum við fljótlega að taka við pöntunum. Vonumst allavega eftir mörgum góðum gestum. Útlit er fyrir að minnsta kosti þrír fjölskyldumeðlimir komi í heimsókn í ágúst og svo bara rúllar þetta :) Fáum húsgögn með og þar kemur tvíbreitt gestarúm sennilega við sögu.
Svo væri þetta allt saman Nígeríusvindl (eins og við erum búin að lenda ítrekað í síðan við fórum að leita okkur að íbúð...).
Við erum búin að panta okkur one way ticket út þann 1. ágúst. Förum bara tvö út til að byrja með og það verður ótrúlegur lúxus :o) Krakkarnir koma viku seinna með fyrstu gestunum...
Næst á dagskrá er að klára að bóka flugin, skrifa undir leigusamning, sækja um leikskóla fyrir Djó og skrá Rannveigu í skólann, selja allt dótið okkar (til að eiga fyrir flugmiðunum) og halda mörg kveðjupartý og matarboð.
Yfir og út
trallan
Engin ummæli:
Skrifa ummæli
við elskum comment!