Nágrannarnir okkar hérna í stigaganginum eru nú ekki alveg allir eins og fólk er flest, sumir alveg ansi langt frá því. En það er huggun harmi gegn að á hæðinni fyrir neðan býr yndislegur gamall maður. Hann býður okkur alltaf góðan daginn á íslensku og í síðustu viku æfði hann sig á nöfnunum okkar allra svo hann gæti heilsað okkur með nafni. "Góðan daginn Valla" sagði hann áðan þegar ég mætti honum í stiganum.
*bráðn*
Ég var orðin svo leið á þessu allirinnísérogenginnbíðurgóðandaginn og ákvað að vera týpan sem bíður góðan dag. Ég hef sjaldan séð eins kátt fólk og gamla fólkið sem ég mætti um daginn og heilsaði, þau hoppuðu hreinlega af gleði og sögðu HÆÆÆÆÆÆ og vinkuðu og brostu og ég veit ekki hvað. Jákvæð styrking, ætla að halda þessu áfram.
þú ert krútt!!
SvaraEyðaARF
Haha.. vel gert! Meira svona! Og endilega segðu okkur svo frá þessum rannsóknum þínum.
SvaraEyðaÞú ert svo best!
SvaraEyðadjöfulsins dúlla.
SvaraEyða