Hér á eftir fylgja nokkrar myndir úr páskafríinu...
Jóhannes var svo spenntur að fá ömmu og Friðrik. Hér er hann á góðum vordegi rétt fyrir páska, á leikvelli fyrir ofan húsið okkar.
Svo komu mæðginin og drógu upp allskonar góðgæti. Risavaxið lambalæri, óhóflega mikið sælgæti, heimagerða kindakæfu a la mamma, rúgbrauð, flatbrauð, hangikjötslæri og guð má vita hvað. Og auðvitað Royal búðing...!
Það var svakaleg útsala á Converse...Rannveig eignaðist gula og amman svarta. Svaka píur :o)
Við Friðrik fórum með mömmu í Dea Axelson. Það var svo frábærlega skemmtilegt. Kyrrsettum þá gömlu inni í mátunarklefa og bárum svo í hana allskonar fatnað. Friðrik var stoppaður áður en hann komst með þessa peysu inn til hennar...
Komin í rútubílinn, fyrsta sinn í átta mánuði sem Jóhannes Árni stígur fæti upp í bíl. Bílstóllinn var ennþá í plastinu síðan í fluginu frá Íslandi.
Sigtuna, mega kósí. Ætlum þangað aftur!
Miðaldakirkja, að hruni komin. Innganga bönnuð vegna hættu á hruni.
Kannski er maðurinn bara ekki á réttri hillu í lífinu, fór honum allavega ágætlega að messa yfir okkur í predikunarstólnum í Sigtúna.
lágreist hús, endalausar litlar sætar búðir og kaffihús. Notó.
Rútubíllinn okkar...
Í Dómkirkjunni í Uppsala - þar var barnahorn. Æði! Svoleiðis ætti að vera í öllum túristavinsælum kirkjum, Jóhannes vildi ekki fara út.
Dómkirkjan í Uppsala, stærsta kirkjan í Skandinavíu, 118 m háir turnar...(skv. Wikipediu)
Á röltinu í miðbæ Stokkhólms.
Fengum útivistarleyfi eitt kvöldið og kíktum á O'learys í Vällingby. Freddi pós meðan við biðum eftir lestinni heim.
Að morgni páskadags...hvar eru þessi egg eiginlega falin?
Tatamm!
Að morgni annars í páskum skellti ég mér svo til Danmerkur í menningar- og skólaheimsóknarferð með Menntaskólanum. Frábær ferð, segi kannski frá henni síðar. Kvíðahnúturinn í maganum stækkar og stækkar með hverri mínútunni - tvær vikur án lærdóms ásamt óhóflegu súkkulaði- og kjötáti (og svolítið af dönsku öli) er bara of mikið! Nú er það bara alvara lífsins framundan, ekkert sukk og svínarí og lærdómurinn tekinn í nefið.
Adjö!
Ó hvað það er gaman að sjá svona mikið af myndum! Páskarnir hafa greinilega verið æðislegir fyrst Royal mætti á svæðið. Sko búðingurinn :)
SvaraEyðaGaman að fá loksins nýtt blogg...litlu gulu páskaunganir eru nú frekar flottir og auðvitað líka þið gömlu öll sömul;-)
SvaraEyða