Um næstu helgi fer Rannveig til Uppsala í æfingabúðir og svo eru mót næstu tvær helgar eftir það. Mikið að gerast í sundinu fram á vor!
22 apríl 2012
Saltkråkan och fjärilsim
Sunnudagur, komið hádegi og við Jóhannes kúrum yfir sjónvarpinu. Grátt og hráslagalegt úti, 5° og okkur langar ekki út alveg strax. Í sjónvarpinu er verið að sýna Saltkráku Astrid Lindgren. Það rifjar upp góðar minningar frá sumardvöl minni í Noregi 1996 - en krakkarnir sem ég var að passa þar elskuðu þessar myndir. Á rigningardögum (sem voru ófáir það sumarið) kósuðum við okkur gjarnan inni og horfðum á Olsenbandet, Línu, Saltkráku eða Disney myndir. Krakkarnir á Saltkráku áttu kanínu sem hét Jocke og Lasse litli sem ég var að passa fékk einmitt alveg eins kanínu og skírði hann Jocke (og svo gaf ég helv... kanínunni að borða og eltist við hana allt sumarið en hvað um það!).
Addi og Rannveig eru í Åkersberga á sundmóti. Fyrsta greinin var 50 flug og hún bætti tímann sinn um rúma sekúndu. Hefði víst lent í 3ja sæti í flokki drengja 11-12 ára með þennan tíma...en stelpurnar eru eitthvað fljótari svo hún varð áttunda. Flugsund er sumsé besta greinin hennar Rannveigar.
Um næstu helgi fer Rannveig til Uppsala í æfingabúðir og svo eru mót næstu tvær helgar eftir það. Mikið að gerast í sundinu fram á vor!
Um næstu helgi fer Rannveig til Uppsala í æfingabúðir og svo eru mót næstu tvær helgar eftir það. Mikið að gerast í sundinu fram á vor!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Duglega Rannsý! Svo frábært að hún geti haldið áfram að bæta sig þarna úti, þetta liggur svo ægilega vel fyrir henni :)
SvaraEyða