08 ágúst 2011

Beðið eftir börnum og systkinum...

Það er um klukkustund í að Rannveig og Jóhannes komi hingað á Maltesholmsvägen. Ég er orðin frekar eirðarlaus og hlakka svo til að hitta þau. Fluginu seinkaði um rúma klukkustund og nú bíðum við bara og bíðum. Ákvað að því tilefni að setja inn nokkrar myndir og smá fréttir. Við höfum sumsé lifað barnlausu lífi í viku og reynt að gera hluti sem við myndum ekki endilega gera meðan börnin eru hjá okkur. Á laugardagskvöldið tókum við lestina niður í bæ og fórum á smá pöbbarölt. Hér má sjá okkur í lestinni, svaka hress og spennt fyrir því að skoða Gamla stan og nágrenni á laugardagskvöldi, gay pride kvöldi meira að segja. Bjuggumst við svakalegri stemmningu og mannfjölda en það var ekki alveg svoleiðis. Nema að fólk fari mjög seint í bæinn því við fórum snemma heim ;)

Við byrjuðum kvöldið á hressum pub með lifandi tónlist, keyptum bjór sem var rándýr og vondur í þokkabót. Enduðum það svo í hamborgaravagni þar sem við komumst að því að hinn sænski staðgengill Hlölla eru pylsur í bakka með kartöflumús. Við höfðum reyndar ekki smekk fyrir því og fylgdumst bara með hip og kúl píum að slafra þessu í sig.

 
Má til með að setja mynd af helsta forréttinum sem boðið er upp á hér, höfum fengið þetta í öll þrjú skiptin sem við höfum farið út og fengið okkur pizzu. Þetta er sumsé hvítkál með einhverskonar dressingu og svörtum pipar...njomm??? (ekki alveg okkar tebolli...)

Að lokum mynd fyrir Fanneyju vinkonu. Þessi bíll á heima í næsta húsi.

Friðrik, Bogga og krakkarnir lentir og ég ætla að græja miðnætursnarl fyrir þau, adíós.





4 ummæli:

  1. Þið eruð megasæt og greinilega afskaplega in love þarna í lestinni... var þetta löng lestarferð? ;)
    Líst ágætlega á þennan bíl, sýndi Kermit hann og hann roðnaði bara. Spurning um að arransera deiti þegar við komum út.

    P.s. ætli þessi bíll verði falur þegar ég flyt út?

    SvaraEyða
  2. Hvernig hafið þið það? En börnin? Hvernig líst þeim á þetta? Er búið að koma herbergjunum þeirra í stand? Hvenær byrjar Rannsý í skólanum? Er JÁ komin með skólapláss? Eruði búin að fá verð á þann Græna?
    Maður situr hérna í nagandi óvissunni!!!

    Löv,
    F

    SvaraEyða
  3. Búin að vera í því að sinna gestum síðustu vikuna, svör við spurningum þínum koma á veraldarvefinn fljóóótlega!
    Valla

    SvaraEyða
  4. Þið eruð sæt;) var búin að gleyma þessu káldrasli og pulsum með stöppu. hlakka til að lesa meira um ævintýri í Svíaríki!
    kv.
    Sæbjörg

    SvaraEyða

við elskum comment!