Við fórum svolítinn rúnt í gærmorgun - ætluðum raunar að skreppa bara aðeins í búðina tveimur stoppum frá okkur en lentum þá í lestartjekki. Hellingur af einkennisklæddum mönnum birtust allt í einu í lestinni í þeim tilgangi að athuga með lestarkort þeirra sem þar voru. Ég sýndi þeim mitt með bros á vör en brá örlítið í brún þegar maðurinn hvessti á mig augum og bað um studentakortið mitt. Ég sagði honum eins og var að þetta væri stúdentakortið mitt. Tók ljóskuna á þetta - eins og Árný þegar hún var stoppuð af lögreglunni í USA - og slapp við skrekkinn. Slapp við að borga 1200 sænskar fyrir að vera ekki með skírteini upp á það að vera nemandi við sænskan háskóla. Við erum svo miklir aular - keyptum stúdentakort í lestina en föttuðum ekki að maður þyrfti að vera með stúdentaskírteini líka (mér fannst reyndar ótrúlega auðvelt að kaupa stúdentakort...). Fórum og versluðum en brunuðum svo niður á central station og þar þurfti ég að borga um 500 sænskar fyrir okkur bæði til að breyta kortinu okkar í almennt kort...þar sem við höfum ekki fengið nein stúdentaskírteini ennþá. Damn. Allavega.
Ég tók nokkrar myndir í gær af okkar nánasta umhverfi. Veðrið hefur leikið við okkur síðan við komum, glampandi sól og um 25° hiti alla dagana.
Svona er útsýnið af svölunum okkar. Þær snúa í vestur og maður horfir út á Mäleren. Gatan á móti blokkinni okkar er botnlangi og maður endar bara niður að vatni, raunar smábátahöfn með allskyns bátum sem fólkið hér í nágrenninu á. Okkur var boðið að leigja bát með íbúðinni, ætli ég sé ekki farin að sjá eftir því að hafa afþakkað það ;)
Þessi mynd er líka tekin af svölunum. Við endann á götunni okkar er stór skógur (útivistarparadís!) og baðströnd. Fólk tekur lestina/strætó hingað í stórum stíl til að baða sig á ströndinni. Við fórum þangað seinnipartinn í gær og þar var líf og fjör, fullt af fjölskyldufólki, unglingar að drekka bjór og grilla pylsur á einnota grillum, þar er strandblaksvöllur og lítil sjoppa. Við hlökkum til að fara þangað með krakkana.
Addi er ótrúlga ánægður með eldhúsið okkar. Það er risastórt með svolítið miklu meira borðplássi en við eigum að venjast :) Við keyptum ostaskera og pönnu í dag, annars var bara allt í þessu eldhúsi sem við þurfum - meira að segja matur í frystinum og í skúffum. Eina sem vantar er kaffivélin góða...
Hér er mynd frá stöndinni góðu. Fólk flatmagar á grasinu og leikur sér í sandinum og syndir svo í sjónum. Eigum eftir að prófa þetta betur...
Hér er svo húsið okkar. Við búum sumsé í þessari blokk, á efstu hæð í innganginum lengst til vinstri. Þetta er hús byggt fyrir um 50 árum síðan, en íbúðin hefur greinilega öll verið tekin í gegn því hún er mjög fín.
Við fórum í kvöldgöngu í gærkvöldi og ég tók nokkrar myndir. Þetta er smábátahöfnin sem er bara svona 300 m frá húsinu okkar. Fullt af litlum seglbátum, einstaka litlar skútur, árabátar og allt þar á milli. Við sáum fullt af bátum á vatninu og svo var fólk á bakkanum líka með veiðistengurnar.
Mjöööög algeng sjón í hverfinu - gamlar hvíthærðar fínar frúr í hvítum buxum, á göngu með göngustafi. Hverfið okkar var byggt upp fyrir um 50-60 árum síðan. Pabbi leigusalans (sem tók á móti okkur fyrsta kvöldið) var einn af þeim sem byggði upp hverfið á sínum tíma. Þá útvegaði borgin félitlu barnafólki lóðir til að byggja hús. Margir þessara íbúa búa hér ennþá, enda er SLATTI af eldra fólki hérna. Krúttlegu gömlu fólki sem er duglegt að spjalla og vísa til vegar :) Og konurnar allar í hvítum buxum.
Mäleren og sænskt sólarlag...hérna er orðið dimmt miklu fyrr en heima.
Það eru tvær baðstrandir í nágrenninu, önnur nokkur hundruð metrum frá húsinu okkar og svo þessi sem er í svona 7-10 mínútna göngufjarlægð. Þangað komum við þegar farið var að rökkva í gærkvöldi en samt voru ennþá krakkar að leika sér í sjónum (eins og glöggir geta séð á myndinni). Þessi strönd var minni en "okkar" strönd en svaka kósí.
Hér líkur þessu myndabloggi. Lesendur ættu að hafa einhverja hugmynd um hvernig hverfið okkar lítur út. Í dag fórum við svo í IKEA (nauðug - reyndum að panta í gegnum netið en gátum ekki pantað allt sem við þurftum í gegnum netið svo við neyddumst til að fara...). Ákváðum að þetta yrði fyrsta og síðasta Ikea ferð okkar hér í Svíaríki. Við prófum strætóinn að þessu sinni, þurftum að taka þrjá strætóa og ferðin tók okkur um klukkustund. Fengum svo draslið sent heim og kostaði það tæplega 500 sænskar. Við höfum semsagt komist að því að það er allt ógeðslega dýrt hérna.
Og sænska regluverkið gerði okkur erfitt fyrir í kvöld - fundum loksins gleraugnabúð og ætluðum að kaupa linsur. En þá var það ekki hægt nema að fara til augnlæknis í Svíþjóð fyrst og vera með recept frá honum. Það kostar um 500 kall á mann að fara til svoleiðis læknis (tæplega 10.000 íslenskar) og þá fyrst getum við keypt linsur. Það er hægt að kaupa snus löglega í hverri einustu sjoppu en ólöglegt að kaupa linsur. Þeir sem koma í heimsókn verða neyddir til að koma með linsur úr fríhöfninni!
Adios amigos.
Sjæse...já ég var einmitt að tala við Hrönn í gær og hún var að spyrja frétta af ykkur. Hún hafði verið að tala við vinkonu sína sem hefu rlengi búið úti í Stokkhólmi og hún var mikið að tala um það hvað það væri allt hrikalega dýrt þarna úti!! En uss uss...nægur tími síðar til þess að safna pening! Þetta lítur allt hrikalega vel út!! Mikið eigið þið eftir að hafa það gott þarna!! Á ég að kaupa linsur og senda með pakkanum??
SvaraEyðaKramS Sigga Dóra.
OH, veistu þegar þegar ég fór á Hróarskeldu árið 2007 glataði ég annarri linsunni minni í einhverjum hamagangi og hoppi og svo þegar ég kom aftur til Köben þá GAT ég einmitt ekki keypt linsur útaf því ég var ekki með reseft. Ég átti ekki orð sko. En ég man að afgreiðslustelpan sá aumur á mér, af því ég var staurblind, og gaukaði að mér 2 settum af dagslinsum sem ég lét duga þangað til ég kom til Fríríkisins Íslands. Og alveg síðan ég flutti úr landi árið 2008 þá hef ég alltaf keypt allar mínar linsur á Íslandi þegar ég hef komið heim í heimsókn.
SvaraEyðaÞetta er æ ð i s l e g t! Og vá hvað Rannveig og Jóhannes eiga eftir að elska þetta. Lycka till með allt og allt!
SvaraEyðaVá. Þetta er bara Paradísarland. Verður ekki örugglega hægt að baða sig í sjónum þegar ég kem í heimsókn í byrjun desember :)
SvaraEyðaTóta
En gaman að sjá þessar myndir! Þessi færsla hljómar eins og byrjun á góðu ævintýri. Verra að heyra með linsurnar. Þið ættuð að setja hérna inn hvaða styrkleika þið notið og þá er ég viss um að þið fáið senda pakka reglulega ;)
SvaraEyðaHæ
SvaraEyðaÞetta sænska dæmi hljómar ótrúlega vel. Öfunda ykkur af eldhúsinu :)
Bæ
Anna Sigga
Þetta lúkkar unaðslega! Hafið það mega gott :)
SvaraEyða