fer óðum að komast í réttar skorður :)
Friðrik, Bogga og Bjarni komu ásamt Rannveigu og Jóhannesi seint að kvöldi 8. ágúst. Það voru svo sannarlega fagnaðarfundir! Gestirnir voru svo hjá okkur í viku og við brölluðum ýmislegt - það var verslað, legið á ströndinni, farið í Tivolí, leikvellir kannaðir, Gamli Stan og svo gátu systkini mín heimsótt vini sína sem þau eiga hér í Stokkhólmi. Frábær tími - en ekki eins mikil einmuna blíða og var hér vikuna áður. Til dæmis lentum við í mestu dembu sem ég hef upplifað, þrumur og eldingar og það var enginn smá hávaði. Við vorum með krakkana úti að leika þegar veðrið skall á - en Bogga og Friðrik voru niðri í miðbæ að versla og urðu ekki vör við neitt (H&M er sennilega vel hljóðeinangrað!).
Rannveig er búin að skoða skólann sinn, hitta rektor og konrektor og það gekk allt saman eins og í sögu. Okkur leist vel á skólann og við fengum gríðarlega góðar móttökur. Íslenskukennari kemur svo til hennar einu sinni til tvisvar í viku - bæði til að kenna henni íslensku og hjálpa henni við sænskuna. Skólinn byrjar á mánudaginn, 22. ágúst klukkan 8:10. Við Rannveig förum þó aftur á morgun og hittum kennarann hennar og fáum að vita meira um starfið.
Við fengum svo úthlutað leikskólaplássi fyrir Jóhannes á leikskóla hérna nokkur hundruð metrum frá okkur. Það var reyndar leikskóli sem okkur leist nú ekkert sérstaklega vel á - en eftir að hafa farið þangað í óvænta heimsókn í morgun er ég bara nokkuð sátt. Þetta er lítill leikskóli, bara tvær deildir og um 15 börn á hvorri deild. Mjög notalegt starfsfólk og fín aðstaða inni. Það sem vantar er gott útisvæði en þau sögðu mér að til stæði að taka það í gegn og svo er frábært útisvæði allt í kring sem þau nota bara í staðinn. Stutt í marga geggjaða leikvelli og svo skóginn að sjálfsögðu. Hann byrjar líka á mánudaginn svo næsta vika verður tekin í aðlögun :o) Við ákváðum nú samt að halda honum áfram á biðlista inn á leikskólann sem okkur leist langbest á og getum þá séð til ef þessi stendur ekki undir væntingum.
Allir kátir og glaðir, erum búin að vera mikið úti að ganga og skoða nágrennið (Jóhannes hafði þó orð á því í dag að hann vildi óska þess að við ættum bíl í Svíþjóð, hann væri svo þreyttur í fótunum...). Í hverfinu okkar eru ótrúlega flottir leikvellir sem hægt er að dunda sér á heilu dagana sko. Jóhannes minglar heilmikið við fólkið hér í kring, heilsar flestum úti á götu (heiiiiii) og kveður fólk líka (Hey dååå) og svo spjallar hann við krakkana, aðallega á íslensku þó.
Nóg í bili, engar myndir núna - bara seinna.
Heimilisfangið okkar er:
VSB/AÞJ/RKA/JÁA
c/o Holmström Forster
Maltesholmsvägen 159
165 62 Hässelby
Stockholm, Svergie
(svona ef einhver hefði áhuga á að senda bréf eða jafnvel kúlusúkk og smá lopa)
Svo erum við komin með sænsk gsm númer
Valla: 00 46 727114712
Addi: 00 46 727114711
Hey då!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli
við elskum comment!