02 ágúst 2011

Þú ert númer 476 í röðinni...

Þá erum við hjónakornin mætt í stórborgina. Við lentum um hálf 10 í gærkvöldi og flýttum okkur í íbúðina okkar, klyfjuð dóti. Starfsfólkið á flugvellinum var afar hjálplegt, við sluppum við að borga yfirvigt og það var ekkert tekið af okkur í öryggisleitinni nema einn skiptilykil (hvað er annars að því að vera með skiptilykil í handfarangri??).

Faðir leigusalans beið svo eftir okkur í íbúðinni, ótrúlega indæll maður sem klappaði okkur sagði sögur, var búinn að kaupa lífræn epli og banana og jógúrt svo við hefðum eitthvað í morgunmat. Íbúðin er stór, björt og falleg. Eldhúsið er to die for, fjögur stór svefnherbergi og geggjað útsýni yfir Mäleren. Við leigjum með húsgögnum og það er þvílíkur munur að þurfa ekki að fara að kaupa allt. Hér eru krydd í skápum, handklæði, sængur, ryksuga, diskar og hnífapör, internettenging, flatskjár og allskonar dótarí. Pottar í skápum og eldhúsdót í skúffum.

Fórum á stúfana í dag og keyptum okkur lestarkort, brunuðum svo í bæinn að redda málum. Við fórum sumsé í Skatteverket í miðbænum til að sækja um kennitölu og skrá okkur inn í landið. Þar var þvílíka örtröðin, aðstoðarfólk út um allt með gulan borða og svo fékk maður númer...við vorum sumsé nr. 476 í röðinni og þegar við komum var verið að afgreiða þann sem var nr. 411. Röðin gekk nú samt merkilega fljótt fyrir sig. Svo þurfum við að fara með krakkana í sama ferli þegar þau koma. Það er ekki hægt að gera neitt fyrr en maður hefur fengið kennitölu, en hún kemur til manns í pósti eftir tvær til fjórar vikur.

Röltum um Gamla stan, keyptum öl á 55 sænskar (!!!) og skoðuðum okkur svo um í stærsta þjónustu- og verslunarkjarnanum hérna í grenndinni (Vållingby), en þar má meðal annars finna H&M auk fleiri verslana.

Á morgun neyðumst við til að fara og versla í matinn, ætlum svo að kíkja á skólann okkar og reyna að leysa úr símamálum. Við erum með heimasíma en hann virðist ekki virka sem skildi og íslensku gsm kortin okkar eru dauð. Svo er reyndar dyrabjallan biluð (!). Annars allt í hinu besta, frábært veður í dag og góð spá fyrir næstu daga.

Kveðjur frá Stokkhólmi!

6 ummæli:

  1. Jeeei! Elska Völlublogg ! Takk fyrir að láta mig vita mín kæra, hlakka mikið til að fylgjast með ykkur :) Bestu kveðjur frá Glasgow x

    SvaraEyða
  2. Velkomin til Stokkhólms. Síminn minn er 0761056800 og svo er ég líka með netsíma frá símanum og númerið er 4990707 svo hringdu bara ef ef þig vantar að vita eitthvað eða spyrja :)
    Kv. Hildur

    SvaraEyða
  3. Góðar fréttir og skemmtilegt blogg! Einhver sushi-staður sjáanlegur? Get varla beðið eftir að líta á þetta eldhús, hlýtur að vera hægt að malla einhverjar gúrmei máltíðir þar þegar við ARF mætum á svæðið. Puss och hej!

    SvaraEyða
  4. Búin að sjá nokkra sushi staði - ýmist úr lestinni eða niðri í miðbænum. Verðum ekki í vandræðum...
    valla

    SvaraEyða

við elskum comment!