Taugarnar voru þandar til hins ýtrasta í hinum ýmsum tækjum - ég hélt að ég væri að upplifa mína síðustu stund þegar ég fór með Friðrik í þetta tæki sem heitir víst insane. Addi og Bogga fóru svo með Bjarna og Rannveigu í draugahúsið og það var víst eitthvað sem fékk hárin til að rísa...og sumir sögðust jafnvel hafa verið við það að míga á sig úr hræðslu! Krakkarnir (og Friðrik) fóru svo öll í klessubíla, Jóhannes í minni deildina og þau hin í svolítið stærri klessubíla. Hér er mynd af Friðriki, hann skemmti sér ekki síður vel en yngri deildin í þessum klessubílum. Enda var mjööög vinsælt hjá krökkunum að reyna að klessa á svona fullorðinn ökumann ;) Bogga, Bjarni og Rannveig fóru svo í rússíbana sem heitir Lille musen og hér að neðan má sjá mynd af þeim í því tæki. Það var víst mikið öskrað og mátti ekki á milli sjá hvert þeirra fékk mesta kikkið út úr þessu...
Eftir öll þessi læti röltum við aðeins um og hvíldum okkur eftir lætin í einhverjum garði þarna. Krakkarnir skoðuðu dýralífið og klifruðu í tjám og svo ákváðum við að tölta í Junibacken.
Sumir voru orðnir frekar þreyttir eftir daginn og fundu sér góðan áningarstað...
Það var verið að loka í Junibacken þegar við komum þangað (áðum aðeins of lengi á leiðinni...) svo við ákváðum bara að bíða með þá heimsókn. Rannveig fékk nú samt mynd af sér með uppáhalds rithöfundinum sínum sem sat fyrir utan safnið með Bróðir minn ljónshjarta.
Við fórum svo í Junibacken vikunni sem er að líða og það var FRÁBÆRT. Þessi staður er æðislegur og við enduðum á að kaupa árskort! Það er nefnilega hagstæðara að kaupa árskort en að borga sig þarna inn oftar en einu sinni og það er alveg ljóst að við munum fara þangað aftur og aftur. Hér fyrir neðan eru myndir þaðan. Krakkarnir fyrir utan Villevillekula, Rannveig í Múmínálfahúsinu og Jóhannes afgreiðir á kaffihúsinu.
Hey då!
Æðislegt að sjá myndir og gott að heyra hvað er gaman og gengur vel hjá ykkur...kyss og knús
SvaraEyðaHey då
KB
Vá mig langar í Junibacken..
SvaraEyðatóta
förum þangað í desember gamla. Við keyptum ársmiða svo við gætum alltaf farið með öllum gestunum okkar :) Við Addi skemtum okkur (næstum því) alveg jafn vel og börnin :)
SvaraEyðaVSB
Þetta safn hefur greinilega verið algjör snilld! Gaman að sjá myndir :)
SvaraEyðaHvernig gekk samt að þvo? Finnst vanta myndir af þessu þurrkherbergi... Ég bíð spennt!