Hápunktur vikunnar (að undanskilinni frábærri heimsókn í Junibacken í dag) verður vafalaust milli klukkan 16 og 20 á morgun. Þá eigum við pantaða stund í þvottahúsinu sem er hér í næsta húsi. Notkun innifalin í leigunni. Tvær hraðvirkar þvottavélar, þurrkari, þurrkherbergi, risastórar strauvélar og allt sem hugurinn girnist! Erum búin að safna þvotti í nokkra daga og haugurinn er RISASTÓR.
Ég hlakka ROSALEGA til að skella mér í þvottahúsið á morgun. Var búin að banna öðrum fjölskyldumeðlimum að koma með, vildi eiga þessa stund fyrir mig ;o) Rannveig lagði svo inn skriflega aðildarumsókn áðan og ég þarf að svara henni fyrir miðnætti. Ætli ég leyfi henni ekki að fljóta með...
Ég veit ekki hvort ég get sofið í nótt fyrir spenningi...
Hahahaha... Ánægð með Rannsý! Ég er að pissa á mig af spenningi yfir þessu þurrkherbergi og óska hérmeð eftir mynd af blásurunum. Bíð spennt fregna af þvottastundinni.
SvaraEyða