En þvottahúsið er aðalmálið. Fyrsti tíminn okkar var frá 16 til 20 síðastliðið fimmtudagssíðdegi. Þarna eru tvær þvottavélar og einn þurrkari, þurrkherbergi og strauvélar, bæði nýrri týpan og sú eldri. Rafmagnið er ekki innifalið í leigunni og getur víst verið ansi stór biti og við lifum eins og algjörir rafmagnsnískupúkar. Hér er fínasta uppþvottavél sem við notum ekki, þvottavél og þurrkari sem við ætlum sömuleiðis ekki að nota nema í neyð (til dæmis ef ekki fæst tími í þvottahúsinu og íþróttafötin hans Adda verða farin að lykta óbærilega).
Allavega. Við Rannveig náðum að þvo átta vélar af þvotti og þurrka á þessum fjórum tímum. Vorum algjörlega búnar á því eftir. Ég hugsaði mikið til móður minnar meðan á þessu stóð, enda er hún þekkt fyrir að leggja mikinn metnað í þvottinn og oftar en ekki hefur hún stolist til að setja í vél heima hjá mér, brjóta óaðfinnanlega saman og strauja allt mögulegt og ómögulegt. Ég straujaði sumsé viskastykkin og handklæðin í þessari frábæru strauvél, ég sem er yfirlýstur and-straujisti. Ég reyndi sumsé að skila þvottinum eins og móðir mín hefði skilað honum. Jésús minn hvað þetta var gaman. Ég held að allir ættu að eiga svona þurrkherbergi heima hjá sér og sömuleiðis stóra vél til að strauja rúmfötin, það er svo helvíti leiðinlegt að gera það á strauborðinu.
Þessi færsla var nú aðallega fyrir Fanneyju. Hún á í eldheitu ástarsambandi við þvottavélina okkar Adda og elskar núna að þvo þvott og lesa um þvottahúsferðir. Ég lofa að blogga ekki oft um þvottahúsið. Ætla samt að fara þangað á morgun og þvo aðeins.
Smá myndasýning:
Rannveig var gríðarlega spennt fyrir þessu verkefni en fannst skemmtilegast að finna vélarnar hristast...
Rannveig var gríðarlega spennt fyrir þessu verkefni en fannst skemmtilegast að finna vélarnar hristast...
Hér má sjá þurrkherbergið góða. Maður skellir þvottinum bara upp á snúrurnar, kveikir á hitaranum/viftunni og lokar. Eftir svona hálftíma er allt orðið skrjáfaþurrt! AWSOME!
Þetta er forn strauvél. Ég tók bara mynd af henni en notaði hana ekki. Gleymdi hinsvegar að taka mynd af vélinni sem ég straujaði þvottinn í. Geri það kannski á morgun í næsta þvottahústíma...
Stay tuned!!!
Þetta er alveg magnað hreint! Má ég ekki bara senda þér minn þvott?
SvaraEyðaÁtta vélar í dag! sjæse!
SvaraEyðaV
Þetta er æsispennandi! Get ei beðið eftir að sjá myndir af nýju strauvélinni.
SvaraEyðaJ.
Jimundur minn! Þetta er frábært! Þetta þurrkherbergi er möst get. Spurning um að innrétta draslherbergið mitt sem slíkt. Nú eða geymsluna.
SvaraEyðaÉg er að hugsa um að koma með nokkur pils út til ykkar og fá að strauja þau í þessari vél. Það verður allt skemmtilegra þegar maður er með græju í djobbið. Maður er fyrir löngu orðinn leiður á gamla straujárninu!
Þakka annars greinagóða færslu um þvottaaðstöðuna. Næst óska ég eftir mynd af mottuviðringaraðstöðunni, takk.