14 mars 2012

Saga af dreng...

Fyrir nokkru síðan lenti Jóhannes í nokkuð háskalegum aðstæðum. Og faðir hans líka ef út í það er farið.
Þannig var að þeir voru einir heima að dunda sér eins og oft áður. Nema að Jóhannesi verður skyndilega mál og skundar á baðherbergið. Þar tekur hann upp á því að læsa að sér - nokkuð sem hann var búinn að fá fyrirmæli um að væri stranglega bannað. Hér er gamaldags skrá og enginn auka lykill.

Nú voru góð ráð dýr.

Drengurinn sturtaði niður og þvoði sér vandlega um hendurnar, svona eins og lög gera ráð fyrir. Svo ætlaði hann að segja skilið við baðherbergið og halda áfram pabbastundinni. En komst ekki út og gat ekki með nokkru móti opnað sjálfur.

Pabbinn tvístígandi fyrir utan, nokkuð áhyggjufullur og hugsaði ráð sitt. Drengurinn farinn að hrína inni á baði og óskaði eftir hjálp frá föður sínum.

Pabbinn gerði það eina í stöðunni. Gaf fyrirmæli til drengsins, "vertu rólegur, taktu lykilinn, opnaðu gluggann og hentu lyklinum út þegar ég segi!" Þess má geta að við búum á 4. hæð og á baðherberginu er stór gluggi sem er hægt að opna alveg upp á gátt...og það er að sjálfsögðu stranglega bannað að opna hann ef maður er fjögurra ára og jafnvel svolítið erfitt. Pabbinn greip svo húslyklana, stökk niður stigann og sá drenginn, sem stóð þá á baðkarsbrúninni, hélt sér í gluggakistuna og kíkti út um gluggann svo rétt sást í rauða kollinn.

Um leið og pabbinn gaf merki henti drengurinn lyklunum niður af öllu afli (það var reyndar ekki hluti fyrirmælanna) og sem betur fer

... var ekki snjór úti
... lentu lyklarnir ekki í stóra runnanum beint fyrir neðan gluggann

heldur

lentu þeir við fætur pabbans sem stökk svo upp stigana og bjargaði syni sínum úr bráðri hættu. Drengurinn hefur ekki læst að sér eftir þetta. Þarna (loksins) komst hann í aðstæður þar sem hann varð svolítið hræddur...

Já, svona getur lífið verið æsispennandi hér á Maltesholmsvägen!

3 ummæli:

  1. Hahaha.. dúllinn hann Jóhannes! Og ráðagóði faðirinn! Batnaðarknús til uppáhalds Jóhannesar míns :)

    SvaraEyða
  2. Skemmtileg saga. Spurning um að ég steli henni og skrifi aðra salernisferðahrrillingssögu... með myndum.

    SvaraEyða
  3. Skemmtileg saga. Spurning um að ég steli henni og skrifi aðra salernisferðahrrillingssögu... með myndum.

    SvaraEyða

við elskum comment!