Melodifestivalen hefur svo verið ansi fyrirferðarmikil hérna í Svíaríki og fjölskyldan á Maltesholmsveginum hefur fylgst spennt með. Fyrirkomulagið er nokkurnvegin þannig að það eru fjórar undankeppnir þar sem tvö lög komast áfram í úrslitin. Að auki komast svo tvö lög úr hverri undankeppni áfram í "andra chansen". Það er fimmta keppnin, en þá keppa þau átta lög um tvö sæti í úrslitakeppninni. Þannig að það eru alls 10 lög sem komast í úrslitakeppnina þar sem framlag Svía til Eurovision er valið.
Flytjendur ráða hvort lögin eru sungin á sænsku eða ensku, en í úrslitakeppninni voru átta lög á ensku og tvö á sænsku. Áhorfendur eru svo látnir kjósa og kjósa endalaust og mér þætti fróðlegt að heyra upphæðina sem kosið var fyrir þetta árið. Samanlögð atkvæði allra keppnanna voru um 5 milljónir!Atkvæði áhorfenda giltu 50% og á móti þeim giltu stig sem dómnefndir 10 annarra Evrópulanda gáfu lögunum. Þetta er í fyrsta skipti sem það er gert, nokkuð spennandi (stigakeppnin sett upp eins og í lokakeppninni) en lögin sem voru sungin á sænsku áttu þó engan sjens hjá þessum evrópsku dómnefndnum.
Ein af þessum stórkostlegu afmælisgjöfum sem ég fékk, var ferð til Nyköping á generalprufu fyrir fimmtu keppnina; andra chansen. Tinna vinkona sótti mig fyrir hádegi og við brunuðum úr bænum. Fyrsta sinn í marga mánuði sem ég fer svona á rúntinn og það var rosalega gaman (sá t.d. sveitabæi og varð æst og spennt...). Það er selt inn á tvær generalprufur, þessi var eftir hádegi á laugardeginum, nokkrum klst. fyrir keppnina sjálfa. Þetta var ótrúlega gaman. Ég átti í mestu vandræðum með að ná að fylgjast með öllu, því mér fannst ekki síður spennandi að fylgjast með öllu sem gerðist bak við tjöldin eins og því sem gerðist á sviðinu. Um tíma var ég föst við myndavélarnar og datt í hug að ég væri á rangri hillu í lífinu - af hverju er ég ekki í svona spennandi starfi eins og að vera myndatökumaður!
Lagið sem við héldum með upp úr andra chansen var svona djók-lag, fígúra sem kallar sig Sean Banan og hans helsta markmið virðist vera að gera grín. Lagið fjallaði um komu hans/hans líkra sem innflytjanda til Svíþjóðar. Bara bull en samt svolítið sniðugt. Rosa show.
Þetta lag komst þó ekki áfram. Aftur á móti komst vinur hans Adda áfram, Thorstein nokkur Flinck. Addi hefur verið með lagið hans á heilanum í einhverjar vikur og ég hef þurft að gefa honum harkaleg olnbogaskot nokkrum sinnum á almannafæri. Thorstein þessi er stórfurðulegur, leikari að atvinnu og hefur verið tengdur við ýmsa óregluskandala í gegnum tíðina. Kemur fram berfættur, með brúnar tennur af mikilli tóbaksnotkun og í undanúrslitunum kleip hann kynninn í rassinn beint fyrir framan myndavélarnar. Í úrslitakeppninni varð hann í þriðja sæti hjá sænsku þjóðinni! Hér á eftir má sjá myndbandið með rassaklípunni hans (sem varð forsíðufrétt að sjálfsögðu) og svo laginu sjálfu. Þess má geta að hann hefur viðurkennt að hafa hellt aðeins upp á sig í keppninni...
Svo kom að úrslitakvöldinu, sem var síðasta laugardag. Við horfðum á keppnina hjá Tinnu, á Kungsholmen. Þar var mikið spáð og spögúlerað og við veðjuðum aðeins um úrslitin. Það er skemmst frá því að segja að okkar gisk samræmdust ekki úrslitunum svo við vorum nokkuð langt frá því að vinna júrópottinn. En mig langaði bara að deila með ykkur uppáhaldslögunum okkar, Addi hélt sumsé með fyrrnefndum Flinck en við stelpurnar vorum voðalega skotnar í Danny. Hann var í öðru sæti í fyrra, á eftir Eric Saade. Það er ekkert sérstakt að lenda í 2. sæti og hann ætlaði sér alla leið í þetta skiptið. Var með metnaðarfullt atriði og miklu betra lag en í fyrra en laut í lægra haldi gegn Loreen - og varð aftur í 2. sæti og nokkuð skúffaður greyið strákurinn. Hann gæti reyndar stofnað klúbb með Ingó Veðurguð.
Svo var það Loreen. Hún komst áfram fyrsta kvöldið og var strax spáð sigri. Maður vissi svosem allan tímann að hún myndi vinna. Ég veit samt ekki hvað mér finnst um dansinn hennar en lagið er vissulega nokkuð catchy og svo er hún voða voða sæt.
Ég gæti linkað á öll þessi lög, en eitt enn sem var í pínu uppáhaldi hjá okkur. Kannski bara af því að stelpan sem söng er fyrrverandi kærasta Eric Saade.
Að lokum, fyndnasta atriði þessa árs, félagi Ranelid sem er í meira lagi sérstakur. Hann er með tanorexíu á sæmilegu stigi, eða bara háður brúnkukremum. Hann fór í fýlu og ætlaði að hætta við að vera með því það voru allir að gera grín að honum en svo var hann með og ég man ekki hvort hann endaði í neðsta eða næstneðsta sæti. Eitthvað svoleiðis.
Gjörsvovel, melodifestivalen pistillinn búinn - hvert er þitt uppáhald lesandi góður?
Sko, ég hélt upp á lagið sem vann núna 2012 árið 1997?! Frekar kunnuglegur hljómagangur. En ég hef bara heyrt það, ekki horft. Það var mjög skemmtilegur pistill á RÚV í gær um sænsku keppnina þannig að ég kom vel undirbúin inn á bloggið þitt í dag ;-) Þar fengum við þær upplýsingar að einn maður réði þessu öllu!
SvaraEyðaSnalla Snalle með Caroline fra Ugglas er enn uppáhalds sænska júrólagið mitt. Fæ alltaf hláturskjánahroll. Takk fyrir pistilinn. Þú ert æði! Knús, Hildur
já og Sean Banan var að sjálfsögðu uppáhaldið hans Jóhannesar og hann er búinn að horfa á atriðið milljón sinnum og syngur viðlagið...
SvaraEyðaMér finnst lagið hennar Loreen æði, en þessi dans, úff ég get ekki þennan dans! Sú þarf að fá sér nýjan kóreugrafer (Yasmine Olsen gæti t.d. kennt henni nokkur spor - m.a.s. á sænsku!).
SvaraEyðaOg það hefði sko verið kraftaverk hefði fjólublái gaurinn komist áfram. What´s up?
Þetta var annars afskaplega skemmtilegur pistill Valla mín, jey jey jey! :)
Ég var ekki búin að hlusta á pistilinn á RÚV, en þar er einmitt talað um Björn appelsínugula Ranelid. Þessi keppni hefur verið ótrúlega mikið í fjölmiðlum síðustu vikur og greinilega mjög vinsæl meðal Svía...og svona einstakra útlendinga eins og okkar ;)
SvaraEyðaEn í sambandi við Euphoria þá póstaði t.d. Stebbi Hilmars lagi á fb í gær sem honum fannst mjög líkt laginu hennar Loreen. Hún tók þátt í sænska Idolinu fyrir nokkrum árum og í Melodifestivalen sömuleiðis í hitteðfyrra eða eitthvað svoleiðis og gekk ekkert sérstaklega. Þetta verður spennandi. En ég man ekki einu sinni hvað íslenska lagið heitir sem fer út...úps!
GUÐMINNGÓÐUR!!! Lagið heitir Mundu eftir mér!!!! Og þú manst það ekki. Ojæja. Mér sýnist að það sé búið að fótósjoppa íslensku keppendurnar í drasl þannig að þetta verður allt saman yndislega og dásamlega fallegt. Tökum við ekki bara júróveðmál í Danaveldi, setjum í pott, flytjum lögin fyrir ferðafélagana og höfum stemmó? Þaéldénú. Kveðja, HHa
SvaraEyða