Ég á frábærar samstarfskonur í MA sem gáfu mér svolítið sniðuga gjöf. Þær sömdu við Adda um að bjóða mér út að borða í þeirra boði - og Addi vatt sér í málið í dag. Fallegur og sólríkur sparidagur í dag!
Við fórum snemma í bæinn og tókum smá túrista á þetta, röltum um Gamla stan og skoðuðum mannlífið áður en við fengum okkur að borða.
Á morgun verður svo afmælisgjafadagur allan daginn, en Tinna vinkona okkar gaf mér ferð til Nyköping að horfa á generalprufu Melodifestivalen (sænsku júróvisjón). Ég verð sótt kl. 10 í fyrramálið og svo verður dagskrá allan daginn :o)
Góða helgi!
Þið eruð yndisleg! Þetta eru dásamlegar myndir, bæði af ykkur hjónakornum og af börnunum. Njótiði í botn - og passaðu þig á morgun. Hef fengið veður af því að brúnkukremum verði sprautað á miðnætti. Knús í hús og löv á kantinn.
SvaraEyðaOhh það er svo gott að eiga svona dag, hefur greinilega verið góður :)
SvaraEyðaARF
Frábær gjöf hjá samstarfsfólkinu! Já og hrikalega ertu sæt þarna með börnunum.
SvaraEyða