02 mars 2012

Föstudagur í borginni

Það gengur ekki að læra alla daga, stundum þarf maður að taka sér smá frí og njóta sólarinnar og þess sem borgin hefur uppá að bjóða! Þessi helgi verður svolítið svoleiðis - en ég er ennþá að taka út afmælisgjafirnar! Hversu heppin getur maður verið með vini og fjölskyldu?

Ég á frábærar samstarfskonur í MA sem gáfu mér svolítið sniðuga gjöf. Þær sömdu við Adda um að bjóða mér út að borða í þeirra boði - og Addi vatt sér í málið í dag. Fallegur og sólríkur sparidagur í dag!
Við fórum snemma í bæinn og tókum smá túrista á þetta, röltum um Gamla stan og skoðuðum mannlífið áður en við fengum okkur að borða.




Á morgun verður svo afmælisgjafadagur allan daginn, en Tinna vinkona okkar gaf mér ferð til Nyköping að horfa á generalprufu Melodifestivalen (sænsku júróvisjón). Ég verð sótt kl. 10 í fyrramálið og svo verður dagskrá allan daginn :o)

Góða helgi!



3 ummæli:

  1. Þið eruð yndisleg! Þetta eru dásamlegar myndir, bæði af ykkur hjónakornum og af börnunum. Njótiði í botn - og passaðu þig á morgun. Hef fengið veður af því að brúnkukremum verði sprautað á miðnætti. Knús í hús og löv á kantinn.

    SvaraEyða
  2. Ohh það er svo gott að eiga svona dag, hefur greinilega verið góður :)

    ARF

    SvaraEyða
  3. Frábær gjöf hjá samstarfsfólkinu! Já og hrikalega ertu sæt þarna með börnunum.

    SvaraEyða

við elskum comment!