07 mars 2012

Innsýn í matarheim Maltesholmaranna

* Er til of mikils að ætlast til þess að kjúklingurinn sem maður kaupir sé ekki kafloðinn? Er ekki eitthvað fólk í vinnu við að reita kvikindin?
* Heimatilbúin hvítlauksolía úr lífrænni jómfrúarolíu og klettasalat er allt sem þarf til að gera gourmet pizzu. Já og fajitas kökur!
* Hérna kostar lítil dós af skyri (160 gr) um 18 krónur sænskar (margfaldið með 19). Hins vegar kaupi ég kíló af kjúklingabitum á 10 krónur (með loðmund í kaupbæti!). Hmm.
* Eftir að við fluttum til Svíþjóðar höfum við borðað að meðaltali 3 kg af eplum á viku. Royal Gala, þau eru æðis! Svona eins og lífrænu eplin sem ég keypti fyrir hálfan handlegg í Heilsuhúsinu í denntid.
* Eggjaneysla okkar hefur líka margfaldast. Og við notum þau sjaldan í bakstur.
* Við eigum alltaf beikon í frystinum. Ekki spyrja mig af hverju! Hefur eitthvað með Adda að gera og það að hér er beikon ekki lúxusvara...
* Það fyrsta sem ég kaupi þegar við komum aftur heim verður hvítlaukspressa. Við notum svoleiðis nánast á hverjum degi. Hvernig fór ég að þessu heima? Jú, saxaði hvítlaukinn, mjög tímafrekt og krónísk hvítlauksfýla af höndunum á manni...

Að lokum:
Síðasta laugardagskvöld einhverntíman eftir miðnætti var ég á leiðinni heim, eftir Melodifestival ævintýrið, þegar maðurinn sem stóð við hliðina á mér í lestinni (nokkuð ölvaður greyið) beygði sig niður. Ég hélt að hann væri að búa sig til svefns á gólfinu í lestinni... en svo reistu félagar hans hann upp og þeir fóru svo út á næstu stöð. Eftir stóð ég í þessari líka fýlu. Eftir svona þrjár sekúndur áttaði ég mig á því að maðurinn hafði verið að æla. Rétt við fæturna á mér. Lyktin var viðbjóðsleg og hann hafði nýlega borðað nautakjöt og papriku. Næs?

7 ummæli:

  1. hahaha - oj hvað ég sakna ekki loðkjúllanna, þeir eru líka fáanlegir í danmörku.
    voðalega sem það er truflandi!

    SvaraEyða
  2. Úff - agalegt þegar maður lendir í þessu. kv, FB

    SvaraEyða
  3. Ég ældi í ræktinni í dag, það var hressandi. Eins gott að þú varst ekki þar :)

    ARF

    SvaraEyða
  4. hahaha oj bara....hefði ælt sjálf sko ;)
    kv ólína

    SvaraEyða
  5. Æ það er bannað að skrifa svona "líf mitt er heilsusamlegt" færslu með skyri, lífrænum olíum og eplum... eða sko það er bara bannað vegna þess að einmitt í kvöld borðaði ég engan kvöldmat heldur fékk mér bland í poka.

    SvaraEyða
  6. Tóta, sástu ekki punktinn með beikonið??????? Og skyrið er svo dýrt að við kaupum það auðvitað ekki nema í undantekningartilfellum ;)

    SvaraEyða
  7. Æ ég las þetta ekkert almennilega. Var í sykurham og ekki með fulla athyglisgáfu.

    SvaraEyða

við elskum comment!