21 mars 2012

Miðvikudagsmyndir

Ég fór að prjóna. Gerði húfu á strákinn (sem varð alltof stór), trefil, vettlinga og lopapeysu. Prjónamojoið er vonandi að koma til baka, mig vantar bara meira garn.

Rannveig er búin að finna nýjan myndasvip.

En drengurinn er alltaf með sama myndabrosið!

Við Jóhannes vorum á röltinu í gær eftir leikskóla og fundum þessa fínu hárgreiðslustofu sem bauð upp á voðalega ódýra barnaklippingu. Drengurinn þurfti nauðsynlega á klippingu að halda, lubbinn orðinn svakalegur og hræðilega illa klipptur. Hann fékk nefnilega hræðilega jólaklippingu sem ég svo reyndi að laga aðeins þarna í febrúar einhverntíman. Það var nú ekki til að bæta neitt skulum við segja... EN allavega, fórum inn og hittum fyrir svakalega myndarlegan Grikkja sem tók svona vel á móti okkur. Ég byrjaði á að spyrja hann hvort hann tæki greiðslukort, því ég væri ekki með lausan pening. Nei hann tók ekki kort en það var nú ekki málið, ég skyldi bara koma í næstu viku eða þegar ég ætti leið hjá næst og borga honum. Vippaði hann svo drengnum í stólinn, sættist á það með semingi að krúnuraka hann (mér fannst það öruggast í stöðunni, varla hægt að klúðra því og langur tími þar til hann þyrfti að fara næst) og bæði Jóhannes og Grikkinn stóðu sig með prýði.

Meðan sat ég og fletti Bo bedre. Ég hefði kannski átt að fylgjast aðeins betur með því áður en ég gat opnað munninn til að andmæla var þessi vel girti Grikki búinn að rífa upp fjóra mismunandi spreybrúsa og úða á krakkann. Skellti meira að segja þessu fallega J-i efst á kollinn á honum. Skúffuð mamman spurði hvort þetta næðist ekki örugglega úr...- jú með vatni sagði hann. Bleytti svo klút og reyndi að þurrka smá sprey af öðru eyra drengsins, með slæmum árangri. Þá bætti hann við: - jú með vatni og sjampói.

Eftir tvær umferðir af sjampói er hann lítið skárri og ég er að spá í að gleyma því að borga fyrir klippinguna.

(djók, auðvitað borga ég...en hann fær aldrei aftur að spreyja á barnið mitt!)

3 ummæli:

  1. okei - þetta er bæ far það furðulegasta sem ég hef heyrt alla vikuna.
    ég get svarið það.
    væri skömminni skárra en barnið væri með einhverja ógeðslega kúl mynd spreyjaða á hausin... en þetta er bara eitthvað!

    iss gleymdu bara að borga ;)

    SvaraEyða
  2. alls ekki borga honum - ættir frekar að fara fram á skaðabætur ! :)
    kv,
    FB

    SvaraEyða
  3. Þessi börn eru svo yndisleg, spreyjuð eður ei. ÁST til ykkar og góða helgi!

    SvaraEyða

við elskum comment!