24 mars 2012

Öfgafemínistinn!

Þeir eru sjálfsagt til sem vilja flokka mig sem öfgafemínista. Ég er guðslifandi fegin að það séu til konur eins og Sóley Tómasdóttir, Kolbrún Halldórsdóttir, Hildur Lilliendahl, Katrín Guðmundsdóttir og fleiri og fleiri – sem eru tilbúnar að taka þennan ömurlega slag um kynjajafnrétti. Þetta er nefnilega ömurlegur slagur, eins og vitnaðist á dögunum þegar Hildur fór að taka saman ummæli karla um femínisma á netinu. En þessi ummæli segja okkur ekkert annað en það að þegar rökin og þekkinguna skortir dælir fólk út úr sér klisjukenndum viðbjóð um óhamingjusamar loðnar kerlingar sem fá ekki að ríða. Já, og þær eru rosalega bitrar líka, gleymum því ekki. Öfga-ómálefnalegt.

En hverjar eru þessar öfgar, sem meira að segja frú Vigdís Finnbogadóttir vísaði í í síðustu viku (án þess að útskýra mál sitt á nokkurn hátt)? Er hún að tala um fyrirspurn Kolbrúnar Halldórsdóttur um bleiku og bláu gallana? Sú umræða tók um 15 mínútur á Alþingi og fyrir mér hefði mátt ræða þetta lengur. Kannski er það vegna allra rannsóknanna sem ég hef lesið um þar sem kemur í ljós hversu ólík viðbrögð börn fá frá foreldrum og öðrum, eftir því hvors kyns þau eru (eða hvors kyns fólk heldur að þau séu). Strax á fæðingardeildinni byrja börn að fá skilaboð um hver þau eru og hvernig þau eigi að hegða sér, út frá því hvers kyns þau eru. Ég trúi því að þessi skilaboð sem börnin fá frá samfélaginu í kringum þau hafi hamlandi áhrif á þau út lífið.

Eru það öfgar að gagnrýna markaðssetningu á ís fyrir annarsvegar stelpur og hinsvegar stráka? Það er kannski róttækt en öfgafullt er það ekki. Eg ræddi þetta ísmál við 11 ára dóttur mína. Hún fullyrti það að enginn strákur á hennar aldri myndi geta hugsað sér að kaupa „stelpuís“. Ekki einu sinni þó hann langaði meira í stelpuísinn, því honum yrði strítt af öllum hinum strákunum.

Svo er talað um karlréttindasinna. Jahá. Ef kona er ekki femínisti (sem sér að jafnrétti er ekki náð og vill gera eitthvað í því) en vill frekar skilgreina sig sem karlréttindasinna. Fyrir hverju er hún að berjast? Fyrir því að karlar haldi áfram rótgróinni stöðu sinni í samfélaginu? Vá það þykir mér merkilegt, í ljósi þess að svo margt vantar uppá jafnrétti kynjanna, að langmestu leyti konum í óhag!Karlréttindasinnar já. Hvaða leiðir ætli þeir fari til að jafna kynhlutföllin í fangelsum landsins eða hlutfall stúlkna og drengja með námsörðugleika, dyslexíu, ADHD? Ætli þeir berjist fyrir rétti karla til að halda áfram að beita konur ofbeldi? Eins og karlarnir í Afganistan sem mega berja konur sínar ef þær óhlýðnast þeim? Karlmenn beita aðra ofbeldi og verða einnig fyrir meira ofbeldi en konur. Karlmenn fremja frekar sjálfsmorð en konur. Karlar eru hættulegri í umferðinni. Svona mætti lengi telja (vá það er svolítið hræðilegt að hugsa til þess að takast á við þá ábyrgð að ala upp dreng sem þarf einhvernvegin að sveigja framhjá öllum þessum hættulegu hindrunum!). Staða karla er slæm á mörgum sviðum, en það er ekki femínistum að kenna. Um leið og við brjótum niður hugmyndir um karlmennskuna hjálpum við körlum að verða hamingjusamari og sáttari við sjálfa sig. Að leita sér hjálpar í staðinn fyrir að bókstaflega drepast úr karlmennsku. Fyrir því berjast femínistar og alls ekki á öfgafullan hátt. Og hér þurfa fleiri karlmenn að ganga til liðs við baráttuna og ögra gildum karlmennskunnar.

Ef að sonur minn ákveður að verða leikskólakennari eða hjúkrunarfræðingur vil ég að hann fái sömu viðbrögð frá samfélaginu og dóttir mín fengi við sömu ákvörðnum. Ég vil að hann hafi raunverulegt val um að klæða sig upp sem prinsessa eða kúreki á öskudaginn. Ég vil að hann geti verið góður og umhyggjusamur drengur án þess að vera kallaður kelling eða hommi.

Ég vil að sama skapi að dóttir mín geti gengið óhult um göturnar, að sumri sem vetri, nóttu sem degi. Ég vil að hún fái sömu laun og karlmaður í sama starfi. Ég vil að hún sé dæmd af því hver hún er, því sem hún gerir og segir en ekki af útliti eða klæðnaði (eða háreyðingu). 

Ég vil ekki að börnin mín þurfi að eltast við klisjukenndar staðalmyndir frá samfélaginu hvernig þau eigi að hegða sér, líta út og hvað sé „við hæfi“ fyrir þeirra kyn hverju sinni. Staðalmyndir sem markaðsöflin ráða að mörgu leyti, gegnsýrð af klámvæðingu og kvenfyrirlitningu. Ég vil að börnin mín sjái konur jafnt sem karla í fjölbreyttum störfum í samfélaginu. Ég vil að þau sjái að konur jafnt sem karlar geta unnið sem t.d. leikskólakennarar, læknar, lögfræðingar, þingmenn, ráðherrar, bankastjórar, framkvæmdastjórar, bændur, löggur og slökkviliðsmenn. Er það öfgafullt?

Ég vil brjóta  niður valdastrúkturinn í samfélaginu: karlveldið. Ég vil jafnrétti. Ég vil ekki að konur breytist í karlmenn. Ég vil að allir geti notið sín á sínum eigin forsendum. Það hlýtur samt að þýða að konur geti velt karlmönnum úr sessi án þess að það þyki tiltökumál. Þeir hafa setið við stjórnartaumana svo lengi sem elstu menn muna og jú það virðist þurfa sértækar aðgerðir til að jafna stöðuna. Konurnar þurfa meiri hvatningu. Það er ekki sjálfgefið að karlar ráði ríkjum lengur.

Ætli frú Vigdís Finnbogadóttir hafi átt við femínistana sem greiddu brautina fyrir hana í aðdraganda forsetakjörsins 1980? Meðal annars Rauðsokkanna sem voru búnir að hrista vel upp í samfélaginu og fá konur og karla til að hugsa – svo það gæti þótt möguleiki að ögra karlveldinu og gera nokkuð jafn öfgafullt eins og að kjósa einstæða móður sem forseta? Sem hafði engan karlmann sér við hlið til að hjálpa sér að taka á móti gestum og brosa fallega í opinberum embættisferðum?




8 ummæli:

  1. jess!;)

    Sæbjörg

    SvaraEyða
  2. Oh mig langar að taka langt og gott femínistaspjall við þig. Er svo 100% sammála öllu sem þú segir. Orðin ótrúlega leið á þessu tali um öfgafemísta. Var mjög glöð að lessa þennan pistil í gær, líka af því það er karlmaður sem skrifar hann. http://visir.is/ofgafeminismi-/article/2012703249999

    Fólk ruglar saman því að vera öfgafullur og róttækur. Og í þessari baráttu þarf svo sannarlega að vera róttækur þó ekki sé nema til að vekja fólk til umhugsunar. Fólk virðist bara ekki fattta það. Tekur öllu svo fáránlega bókstaflega og dettur alltaf í Morfís með eða á móti umræðuna. Það er aldrei hægt að tala um neitt, það drukknar allt í skítkasti og misskilningi. Stundum langar mig að skæla þegar ég asnast til þess að lesa kommentin á DV um femínista og þeirra baráttu.

    Svo grunar mig að þessi ummæli hennar Vigdísar hafi kannski aðeins verið slitin úr samhengi. eða öllu heldur að maður hefði þurft að heyra meira af þessu kommenti hennar til að skilja betur hvað hún á við. Svo er spurning blaðamanns ekki beinlínis hlutlaus þegar Vigdís er spuyrð hvort hún fylgist með umræðu um öfgafemínista... Hvað er öfgafemínisti? Hefði ekki þurft að skilgreina það?

    Það er eitthvað furðulegt í gangi. Fólk bregst ótrúlega skringilega við umræðunni um femínisma. Auðvitað má stundum gagnrýna aðferðirnar sem femínistar beita en það á ekki þvælast fyrir málstaðnum. Það á að vera hægt að tala um hlutina án þess að snúa öllu alltaf svona á hvolf og fara að rífast um eitthvað allt annað... Eins og umræðan um albúmið hennar Hildar Lilendal...sú umræða fór í einhvern agalegan orðhengilshátt af því hún vogaði sér að kalla albúmið "Karlar sem hata konur" og allt púðrið fór í fordæma þetta nafnaval í stað þess að skoða hvað þessir karlar voru að segja.

    Gæti skrifað heila ritgerð... nenni því ekki.

    SvaraEyða
  3. Það er eitthvað svo mikið bogið við samfélagið sem við búum í þegar feminismi er orðið það mikið tabú að það er ekki einu sinni hægt að ræða málin án þess að allt verði vitlaust og maður sagður vera loðin kerlingardrusla sem fær aldrei að ríða! Þoli þetta ekki... Jafnréttisumræðan er á algjörum villigötum.

    Góður pistill hjá þér Valla mín :)

    ARF sem er pjúra femmi og stolt af því!

    SvaraEyða
  4. Það var blár dagur í vinnunni um daginn og vinnufélagi minn sem er karlmaður, ca 50 ára mætti með blátt naglalakk.
    kv,
    FB

    SvaraEyða
  5. Vel gert!! Algjörlega sammála. Öfgar smöfgar!!

    kv. Dagný

    SvaraEyða
  6. Vel gert Valgerður Bjarnadóttir! Vel gert!

    SvaraEyða
  7. takk þið :) Vildi að ég gæti like-að kommentið hans Friðriks bróður. Hann er náttúrulega snillingur.
    Vallas

    SvaraEyða

við elskum comment!