Laugardagsmorgun, það snjóar úti (hvað er það?!!) og á að vera frekar kalt og suddalegt næstu vikuna. Vorið góða sem lét sjá sig hérna á dögunum fékk bakþanka og ætlar bara að koma aftur seinna. Mamma og Friðrik eru á leiðinni, en þau lenda í Stokkhólmi eftir hádegið. Ég vona bara að þau hafi tekið aðvaranir mínar alvarlega og mæti nokkuð vel búin!
Jæja, 11 dagar frá síðasta bloggi. Er það bara allt í lagi, svona þegar maður er búsettur í öðru landi? Nei, ég spyr...
SvaraEyða