13 mars 2013

Árshátíð

Familían er á leiðinni á árshátíð! Ég hef ekki farið í spariskóna í meira en ár - ætli sé ekki kominn tími til? Sem minnir mig á það, dóttirin á enga spariskó svo þetta þýðir búðarferð!

Sundfélagið heldur voðalega fína árshátíð og við ákváðum að skella okkur, öll fjölskyldan. Við mæðgur ætlum að fara í kjól og greiða harið fínt, strákarnir setja á sig bindi og fara í pússaða skó. Þetta verður eitthvað!

Rannveig verður með skemmtiatriði ásamt vinkonum sínum, það verður fínn matur og meira að segja dansiball á eftir.

Þetta eru nú eiginlega bara stórfréttir held ég.


1 ummæli:

  1. Góða skemmtun elskurnar og endilega takið mynd af ykkur og setjið hérna inn:-)
    Kv. KB

    SvaraEyða

við elskum comment!