Gleðilegt nýtt ár og passið ykkur á flugeldunum! Hér koma svo nokkrar jólamyndir frá okkur.
Á aðfangadag var farið í hressingargöngu áður en Andrés önd byrjaði.
Jóhannes vildi ekki vera með á árlegu jólatrés- og pakkamyndinni. Eins og sjá má er tréð ekki sérstaklega stórt og var því bjargað með því að klæða kassa inní efni og hækka tréð upp um nokkra sentimetra. Sama hugmynd og að setja litlar konur í háa hæla, þá lítur allt betur út!
Fallegar Lín jólasvuntur. Ekki þó Lánasjóðsins sem við fullorðna fólkið treystum á þessa dagana heldur Lín design.
Jóladagur. Nammi.
Fyrsta skautaferðin, Vasaparken 29. des. Rannveig datt aldrei en Jóhannes var svolítið á hausnum.